Fara í efni

Raddir ungs fólks á Austurlandi

Menntaskólinn á Egilsstöðum 6. mars 2026 kl. 16:00
Ert þú á aldrinum 15–25 ára og langar að hafa áhrif á íþróttastarf á Austurlandi? Nú hefurðu tækifærið!
 
Komdu á Raddir ungs fólks – samtal við ráðamenn og segðu þína skoðun!
 
 
Raddir ungs fólks er samtal um þátttöku í samfélaginu, upplifun í íþrótta- og æskulýðsstarfi og leiðir til framtíðar við forystufólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar. Fundirnir eru samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraða og Ungmennaráðs UMFÍ og fara fram um allt land vorið 2026.
Markmið samtalsins er að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks á aldrinum 15 –25 ára og skapa vettvang til að koma sjónarmiðum á framfæri í samtali á jafningjagrundvelli við forsvarsfólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar.
 
Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í handknattleik, heimspekingur og meistaranemi í íþróttasálfræði, stýrir fundunum í samstarfi við Ungmennaráð UMFÍ og svæðisfulltrúa íþróttahéraða á hverjum stað.
 
Allar niðurstöður fundanna verða nýttar í heildstæðri stefnumótun íþróttahreyfingarinnar, sem nú stendur yfir. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og byggir á þeirri sýn að aðstæður og áskoranir ungs fólks eru ólíkar eftir landshlutum
 
Getum við bætt efni þessarar síðu?