Fara í efni

Skógardagurinn mikli

Trjásafnið Mörkinni Hallormsstað 20. júní 2026 kl. 10:00-16:00

Skógardagurinn mikli er fjölskylduhátíð sem haldin er í Trjásafninu í Mörkinni á Hallormsstað um Jónsmessuleytið á hverju ári.

Bændur á Austurlandi taka virkan þátt í hátíðinni, bæði skógarbændur, nautgripabændur og sauðfjárbændur. Gestir fá að smakka á austfirskum landbúnaðarafurðum og á fjölbreyttri dagskrá eru leikir, skemmtiatriði, tónlist og fleira.

Skógartengdir leikir, þrautir og handverk er ómissandi þáttur í hátíðinni þar sem börnin fá að tálga, mála á tré, klifra í trjám og margt fleira.

Hápunktur dagsins er ávallt Íslandsmeistaramótið í skógarhöggi þar sem reynt skógarhöggsfólk etur kappi hvert við annað með keðjusög og fleiri verkfæri að vopni.

Facebook-síða Skógardagsins mikla

Skógardagurinn mikli í Trjásafninu í Mörkinni

Getum við bætt efni þessarar síðu?