Fara í efni

BRAS: Sögusmiðja fyrir 9-12 ára með Ævari Þór Benediktssyni - FULLT

Bókasafn Héraðsbúa 30. september 2025 kl. 16:00-18:00
UPPFÆRT: Fullt er í smiðjuna og ekki hægt að bæta við skráningum. 
 
Bókasafn Héraðsbúa býður krökkum á aldrinum 9-12 ára upp á sögusmiðju með Ævari Þór Benediktssyni þriðjudaginn 30. september frá 16-18.
 
Sögusmiðja þar sem Ævar Þór Benediktsson fer yfir bækurnar sínar og skoðar hvernig maður breytir hugmynd í sögu og hvernig sú hugmynd verður svo að bók. Fullkomin stund fyrir unga höfunda sem vilja skyggnast bak við tjöldin.
 
Smiðjan er þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning er nauðsynleg þar sem fjöldi þátttakenda í smiðjuna er takmarkaður.
 
Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði og hluti af Bras - menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi.
 
Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/5VzDaSGDm
 
Getum við bætt efni þessarar síðu?