Sumarkvartettinn er samstarf einvala tónlistarfólks úr íslensku tónlistarlífi, sem leiðir saman krafta sína, þvert yfir landið, í lítilli röð tónleika sumarið 2026. Kvartettinn skipa söngkonan Björt Sigfinnsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Sigmar Þór Matthíason á kontrabassa og trommuleikarinn Birgir Baldursson.
Á tónleikunum verða spilaðar eigin útsetningar af uppáhalds jazz og blús lögum bandsins í bland við frumsamið efni, íslenska sálma/þjóðlög og einstaka “off genre” perlur úr ýmsum áttum.
Miðinn kostar 4.000 kr. Öryrkjar og eldri borgarar greiða 3.000 kr. Frítt inn fyrir 16 ára og yngri.