Sýningin Geiri – Opið hús er opin rannsóknarstofa í Skaftfelli þar sem tekið verður á móti gestum og göfnum og sögum af Geira safnað. Mörkuð verður stefna um varðveislu Geirahúss og gert opið ákall eftir sögum og munum sem tengjast Geira - og stofnað Hollvinafélag um arfleið hans.
Verið hjartanlega velkomin á opnun þar sem Gunnhildur Hauksdóttir mun kynna verkefnið.
Alþýðulistamaðurinn Ásgeir Jón Emilsson (1931–1999), eða Geiri eins og hann er alltaf kallaður, er sennilega best þekktur fyrir smáskúlptúra og ýmsa muni sem hann vann úr frákasti, smáhúsgögn sem helst minna á þjóðbúningasilfur, öskubakka, myndaramma og málverk. Hann er kannski minna þekktur sem ljósmyndari, sem er áhugaverður þáttur í verkum hans og opnar enn frekar á líf og sjónarhorn Geira.
Það er mikill fjársjóður að hafa svo góða mynd af þessum ástsæla listamanni. Húsið hans við Oddagötu er vel þekkt og dýrmætur en viðkvæmur minnisvarði um íslenskan alþýðulistamann – skreytt að innan sem utan litríkum málverkum af stúlkum, fossum og skipum. Húsinu hefur verið haldið að mestu í óbreyttri mynd síðan Geiri lést; vinnuaðstaðan hans, efniviðurinn, lampinn hans og stækkunarglerið eru enn á sínum stað.
Nú er svo komið að enn er þörf á endurbótum á Geirahúsi og því blæs Skaftfell, í samvinnu við Tækniminjasafnið á Austurlandi og Safnasafnið á Svalbarðseyri með stuðningi Safnasjóðs, til átaks um arfleið hans. Verkin hans og munir úr húsinu verða færðir tímabundið í Skaftfell þar sem þeir verða skoðaðir og gerðir aðgengilegir, síðan skráðir og þeim vandlega pakkað til geymslu. Unnið er að áætlun um að lagfæra húsið, færa munina aftur í sama horf og opna húsið aftur almenningi.
Hýbýli alþýðulistamanna hafa skemmst eða glatast í gegnum tíðina og fá standa heil á Íslandi. Hús Samúels Jónssonar í Selárdal og Nonnahús á Akureyri eru góð dæmi um slíka arfleið sem hefur tekist að varðveita. Önnur sorglegri dæmi eru um hús sem hafa grotnað niður eða verið rifin, eins og hús Óskars Magnússonar og Blómeyjar Stefánsdóttur sem þau reistu sjálf, fyrst í Blesugróf í Reyjavík, sem þau kölluðu Kastala, og síðar á Hellisheiði þar sem þau bjuggu og unnu að vefnaði. Einnig hús Gunnþórunnar Sveinsdóttur á Sauðárkróki sem hún reisti sjálf og málaði hverja fjöl, og rak þar verslun. Það hús brann, en verk hennar eru mörg varðveitt í Listasafni ASÍ og Safnahúsinu á Sauðárkróki.
Sýningin verður opin frá 9.mars - 27.mars og er opin
Vikudaga frá 11:00-16:00
Laugardaga frá 12:00-15:00