Tríóið Gadus Morhua er skipað þremur tónlistarmönnum sem öll syngja, leika á hljóðfæri og útsetja og semja tónlist. Þau sinna þjóðlagaarfinum á nýstárlegan hátt.
Á þessum þriðju tónleikum í röðinni Tónlistarstundir á Héraði flytja þau Björk Níelsdóttir söngkona, hljóðfæraleikari og tónskáld, Eyjólfur Eyjólfsson söngvari, hljóðfæraleikari og hljóðfærasmiður og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari, tónskáld og ljóðskáld forna og nýja tónlist í einstökum útsetningum.
Björk hlaut nýlega Grímuverðlaunin sem söngkona ársins fyrir hlutverk sitt í óperunni Sæmundi fróða, Eyjólfur hefur hleypt af stokkunum einstöku verkefni sem kynnir hið forna hljóðfæri langspil í skólum og á öðrum vettvangi. Steinunn Arnbjörg leikur bæði á hefðbundið selló og barrokkselló og hefur auk þess gefið út tónverk og ljóð.
Aðgangur er ókeypis.
Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Austurlands, Múlaþingi, Vök, Lyng Restaurant og Héraðsprenti.