Fara í efni

Tónlistarstund IV - Sólrún Bragadóttir a capella

Vallaneskirkja 7. júlí 2026 kl. 20:00-21:00

Sólrún Bragadóttir sópransöngkona sem búsett er á Austurlandi, syngur íslenskar perlur og sönglög af ýmsu tagi og fléttar efnisskránna saman með frásögnum og söngspuna.

Sólrún á að baki glæstan feril á óperu- og tónleikasviðinu. Hún starfaði lengst af í Evrópu en hefur einnig komið fram í Bandaríkjunum og Asíu. Auk fjöldan allan af óperuhlutverkum, hefur Sólrún komið fram sem einsöngvari með hljómsveitum, hérlendis sem erlendis, sungið kirkjutónleika og haldið ljóðakvöld. Sólrún býður einnig upp á sérstaka raddþjálfun sem hún kallar Sálarflæðissöng/tón, sem ekki bara byggir á raddtækni og áralangri reynslu á sviði, heldur líka vinnu með heilun raddarinnar. Hún flutti heim árið 2022 enn mjög virk sem söngvari og býður reglulega upp á klassíska tónleika með fjölbreyttu efni.

Asparhúsið er opið þar til tónleikarnir hefjast.

//

Soprano Sólrún Bragadóttir who now resides in East Iceland, sings Icelandic and international music, connected by some storytelling and vocal improvisation.

Sólrún has had a long standing carreer on the national and international opera stage. She mainly worked in Europe, but also performed in North-America and Asia. As well as her numerous opera roles, she sung oratorios and Lied recitals, and still continues to do so, after her move to Iceland in 2022. She has developed her own unique method of training the voice and teach vocal technique, Soulflow singing.

Asparhúsið organic restaurant is open until the concert begins

The concert is sponsored by Uppbyggingarsjóður Austurlands, Múlaþing, Vök, Lyng Restaurant and Héraðsprent.

Getum við bætt efni þessarar síðu?