Fara í efni

VESELE BABE heldur tónleika

Tehúsið á Egilsstöðum 29. mars 2025 kl. 13:00-14:00

Kvennakórinn Vesele babe heldur tónleika í Tehúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 29. mars kl. 13:00 og hefur sér til aðstoðar Brúðkaupsbandið Blitva og Hrafnsunnu Ross.

Flutt verða þjóðleg lög frá ýmsum löndum Austur-Evrópu og er fjölbreytileikinn í fyrirrúmi.

Stjórnandi er Suncana Slamnig.

Aðgangseyrir er 1000,- kr. eða meira og enginn posi. Öll innilega velkomin!


VESELE BABE heldur tónleika

Getum við bætt efni þessarar síðu?