Leikarar og leikhúsáhugafólk!
Leikprufur fyrir fjölskyldusöngleikinn Vinir Egils Skalla sem frumsýndur verður í nóvember 2026 í Sláturhúsinu!
Sláturhúsið í samstarfi við leikhópinn Undur og Stórmerki auglýsir eftir leikurum í sýninguna Vinir Egils Skalla.
VINIR EGILS SKALLA er fjölskyldusöngleikur og fantasía eftir Karl Ágúst Úlfsson, sem sækir efni að hluta í Egils sögu Skallagrímssonar en fjallar þó aðallega um tvenna tíma sem mætast og rekast á,
nútíma okkar og landnámsöldina.. Leikritið er spennusaga um tvo krakka sem óvart setja Egils sögu Skallagrímssonar á hvolf og snarbreyta sögunni en það hefur einnig áhrif á veruleika þeirra í
nútímanum. Leikstóri er Ágústa Skúladóttir.
Við leitum að tveimur leikurum á aldrinum 11-20 ára og leikkonu í hluverk ömmu (40 plús) sem einnig geta sungið. Umsækjendur mega gjarnan hafa reynslu úr fimleikum, dansi eða einhverju ámóta. Prufur fara fram í Sláturhúsinu helgina 1.-3. maí.
Áhugasamir sendi línu via email með nýlegri mynd af ykkur og örstuttum upplýsingum um reynslu af leiklist, fimleikum, söng eða öðru sem ykkur finnst skipta máli að komi fram og munum við svara ykkur og úthluta ykkur tíma í prufu helgina 1.-3. maí.
Í prufunni munuð þið fara með textabút úr leikverkinu sem þið fáið eftir að þið skráið ykkur. Einnig verða söngprufur og höfum við ákveðið að nota lagið „Rapp, skóla-rapp“ sem skyldulag auk þess sem þið megið syngja lag að eigin vali og koma þá með playback með ykkur eða spila undir sjálf. Email sendist fyrir 30. apríl á netfangið mmf@mulathing.is.