Fara í efni

Brotajárnssöfnun

Reglulega er staðið fyrir brotajárnssöfnun þar sem íbúum, fyrirtækjum og stofnunum gefst kostur á að losa sig við brotajárn og aðra málma á umhverfisvænan hátt. Þjónustan er gjaldfrjáls og stendur bæði þéttbýli og dreifbýli til boða þegar söfnun fer fram á viðkomandi svæði.

Brotajárnssöfnun stendur nú yfir á Egilsstöðum, Fellabæ, Jökuldal, Fellum, Skriðdag og Völlum.  Skrá þarf ósk um að brotajárn verði sótt fyrir 18. ágúst.

Með þátttöku í brotajárnssöfnun stuðla íbúar, fyrirtæki og stofnanir að aukinni endurvinnslu og hreinna og snyrtilegra umhverfi. Sveitarfélagið hvetur alla til að nýta sér þjónustuna þegar söfnun fer fram á þeirra svæði.

Efni sem tekið er við

Hægt er að skila öllum málmum og brotajárni, meðal annars:

  • Bárujárni
  • Bílhræjum
  • Vélum og tækjum
  • Girðinganeti án óhreininda
  • Hjólbörðum og dekkjum

Mikilvægt er að allt efni sé laust við rusl og önnur óhreinindi.

Ökutæki og bílhræ

Ökutæki sem fara í brotajárnssöfnun skulu vera afskráð áður en söfnun fer fram. Afskráning fer fram á island.is.

Eigendur ökutækja sem fara í endurvinnslu geta átt rétt á endurgreiðslu skilagjalds frá Fjársýslu ríkisins. Endurgreiðslan gildir ekki um ökutæki sem voru skráð fyrir árið 1980.

Nánari upplýsingar um afskráningu ökutækja má nálgast hjá Úrvinnslusjóði og Hringrás.

Undirbúningur fyrir söfnun

Brotajárni skal safna saman á stað sem söfnunarbíll kemst auðveldlega að. Söfnunarbíllinn er útbúinn krana og getur því tekið upp flest efni án aðstoðar.

Verktaka er heimilt að synja um hirðu ef brotajárnið er mengað af rusli eða óhreinindum eða ef aðgengi að því er ófullnægjandi.

Skráning

Nauðsynlegt er að skrá ósk um að brotajárn sé fjarlægt þegar auglýst er söfnun á svæðinu. Það er gert með því að senda póst á umhverfisfulltrui@mulathing.is eða hringja í síma 4 700 700.

Við skráningu þarf að veita eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn
  • Símanúmer
  • Heimilisfang
  • Lýsingu á brotajárni
  • Áætlað magn

Taka þarf sérstaklega fram ef um er að ræða stór eða þung tæki eða annað fyrirferðarmikið brotajárn.

Söfnunaráætlun

Sveitarfélaginu er skipt í þrjú söfnunarsvæði og fer brotajárnssöfnun fram á einu svæði á ári.

  • Svæði 1 Seyðisfjörður, Borgarfjörður, Jökulsárhlíð, Hróarstunga, Hjaltastaðaþinghá og Eiðaþinghá
  • Svæði 2 Egilsstaðir, Fellabær, Jökuldalur, Fell, Skriðdalur og Vellir
  • Svæði 3 Djúpivogur, Berufjörður, Hamarsfjörður og Álftafjörður

Áætlun næstu ára

2026  Egilsstaðir, Fellabær, Jökuldalur, Fell, Skriðdalur og Vellir (svæði 2)
2027 Djúpivogur, Berufjörður, Hamarsfjörður og Álftafjörður (svæði 3)
2028 Seyðisfjörður, Borgarfjörður, Jökulsárhlíð, Hróarstunga, Hjaltastaðaþinghá og Eiðaþinghá (svæði 1)
2029 Egilsstaðir, Fellabær, Jökuldalur, Fell, Skriðdalur og Vellir (svæði 2)
2030 Djúpivogur, Berufjörður, Hamarsfjörður og Álftafjörður (svæði 3)

Brotarjárnssöfnun stendur nú yfir á svæði 2.

Síðast uppfært 07. júlí 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?