Fara í efni

Fræðslu-, tómstunda- og jafnréttisnefnd Djúpavogs

6. fundur 06. júní 2019

Fundargerð 6. fundar fræðslu- tómstunda- og jafnréttisnefndar Djúpavogshrepps kjörtímabilið 2018-2022

Fundur var haldinn í fræðslu- tómstunda- og jafnréttisnefnd Djúpavogshrepps í Geysi, fimmtudaginn 6. júní 2019 kl. 16:15. Fundinn sátu Kristján Ingimarsson formaður, Ólíver Ás Kristjánsson og Elísabet Guðmundsdóttir. Þá sat fundinn Rán Freysdóttir fulltrúi Foreldrafélags Grunnskólans.

Kristján stjórnaði fundi og ritaði fundargerð.

Dagskrá var eftirfarandi:

1. Viðbygging við Grunnskólann.
2. Breytingar á skóladagatali.
3. Skólastefna Djúpavogshrepps.
4. Jafnréttisáætlun Djúpavogshrepps.

--

1. Farið var yfir teikningar af viðbyggingu við Grunnskóla Djúpavogs. Eftirfarandi bókun var gerð: „Fræðslu- tómstunda- og jafnréttisnefnd Djúpavogshrepps beinir því til sveitarstjórnar að fundið verði bráðabirgðaúrræði fyrir útisvæði nemenda við Grunnskólann á meðan framkvæmdir við viðbyggingu standa yfir. Jafnframt verði sett af stað vinna við að skipuleggja framtíðar útisvæði fyrir nemendur“.

2. Breytingar á skóladagatali. Lagt er til að árshátíð Grunnskólans verði færð um viku, frá 16. janúar 2020 til 23. janúar 2020 til þess að skólastjóri skólans geti tekið þátt í viðburðinum. Tillagan samþykkt en nefndin mælir með því að undirbúningstími fyrir árshátið lengist ekki þannig að það komi niður á öðru skólastarfi. Beiðni kom fram um að færa starfsdag í Leikskólanum sem var settur á 21. febrúar til 28. febrúar til þess að starfsdagar skólanna standist á. Beiðnin samþykkt.

3. Skólastefna Djúpavogshrepps. Formaður FJT kynnti nýja skólastefnu Djúpavogshrepps. Nefnd skipuð Kristjáni Ingimarssyni, Elísabetu Guðmundsóttur og Ásdísi Hafrúnu Benediktsdóttur hefur unnið að gerð nýrrar skólastefnu og hefur hún verið kynnt fyrir starfsfólki skólanna og stjórnum foreldrafélaga. Skólastefnan samþykkt af nefndinni.

4. Jafnréttisáætlun Djúpavogshrepps. Kristján Ingimarsson, Elísabet Guðmundsdóttir og Þuríður Elísa Harðardóttir hafa unnið að endurnýjun jafnréttisáætlunar Djúpavogshrepps. Jafnréttisáætlunin samþykkt. Nefndin vill benda á að samkvæmt lögum eiga öll sveitarfélög að vera búin að öðlast jafnlaunavottun fyrir árslok 2019.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið klukkan 17:15

Fundarritari Kristján Ingimarsson (sign)

Getum við bætt efni þessarar síðu?