Fara í efni

Umsókn um lóð, Bjarkasel 10-12

Málsnúmer 202101157

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 10. fundur - 27.01.2021

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsókn um lóðirnar Bjarkasel 10 og Bjarkasel 12 á Egilsstöðum. Umsækjandi óskar eftir breytingu á skipulagsskilmálum lóðarinnar til að byggja þar sex íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að láta fara fram grenndarkynningu til minniháttar breytingar á deiliskipulagi svæðisins, í samræmi við áform umsækjanda. Skipulagsfulltrúa er falið að kalla eftir gögnum frá umsækjanda til að framkvæma grenndarkynningu og leggja þau fyrir ráðið um leið og þau liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?