Fara í efni

Húsnæðismál Fellaskóla

Málsnúmer 202202095

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 37. fundur - 15.02.2022

Fjölskylduráð sýnir skilning á erindi Fellaskóla um skort á aðstöðu, bæði í grunn- og tónlistarskóla og tekur heilshugar undir þá tillögu að leikskólahúsnæði Hádegishöfða verði áfram nýtt sem skólahúsnæði í Fellabæ til að brúa bil þar til byggð verður efri hæð við Fellaskóla. Fræðslustjóra falið að fylgja erindinu eftir gagnvart Eignasjóði í samráði við formann.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?