Fara í efni

Bréf frá kjörnefnd Lánasjóðs sveitarfélaga ohf - auglýst er eftir framboðum til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 202202102

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 45. fundur - 22.02.2022

Fyrir liggur bréf frá kjörnefnd Lánasjóðs sveitarfélaga ohf., dags. 11.02.2022, þar sem auglýst er eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga sem skulu berast í síðasta lagi á hádegi þann 9. mars 2022. Óskað er eftir að sveitarstjórnarmönnum verði kynnt innihald bréfsins.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð felur skrifstofustjóra að koma fyrirliggjandi erindi frá Lánasjóði sveitarfélaga á framfæri við kjörna fulltrúa.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?