Fara í efni

Tilfærsla á starfsdögum vegna námsferðar starfsfólks í leikskólanum í Brúarási

Málsnúmer 202302062

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 62. fundur - 14.02.2023

Fyrir liggur erindi frá Ásgrími Inga Arngrímssyni, skólastjóra Brúarásskóla, dagsett 9. febrúar 2023. Í erindinu er óskað eftir tilfærslu á starfsdögum vegna námsferðar starfsfólks í leikskólanum í Brúarási. Jafnframt er óskað eftir að stytta skóladag leik- og grunnskólans, 19. apríl, þannig að honum ljúki kl. 12:30.

Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti að færa starfsdag leikskólans frá 27. febrúar til 21. apríl 2023 og að skóladagurinn í Brúarási, 19. apríl, ljúki kl. 12:30.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?