Fara í efni

Umsagnarferli vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir Inn í skóg ehf, Hallormstaður Shells., Vellir

Málsnúmer 202306189

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 37. fundur - 06.07.2023

Fyrir liggur frá Sýslumanninum á Austurlandi beiðni um umsögn vegna umsóknar frá Mateusz Piotr Golda, kt. 3005924229, dagsett 28.6. 2023, um rekstrarleyfi til reksturs kaffihúss, veitingaleyfi - E leyfi, í Hallormsstaður Shells, Völlum, 701 Egilsstöðum.

Á grundvelli 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 veitir heimastjórn Fljótsdalshéraðs jákvæða umsögn um rekstrarleyfi til reksturs kaffihúss - E leyfi, að Hallomrsstaður Shells, Völlum, 701 Egilsstöðum.

Heimastjórn staðfestir að starfsemin er í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála og að lokaúttekt hafi farið fram, sbr. umsögn byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa. Jafnframt staðfestir heimastjórn að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að er innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. Þá staðfestir heimastjórn að kröfum um brunavarnir er fullnægt, sbr. umsögn Brunavarna á Austurlandi og að starfsemin er í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli, sbr. umsögn Heilbrigðiseftirlits Austurlands.

Jafnframt samþykkir heimastjórn að afgreiðslutími áfengisveitinga verði frá kl. 8.00 til 21.00.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?