Fara í efni

Umsókn um byggingarheimild, Höfn 2, 765,

Málsnúmer 202403027

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 111. fundur - 18.03.2024

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsókn um byggingarheimild fyrir byggingu 30m2 aðstöðuhúss á lóðinni Höfn 2 (L159156) við Djúpavogshöfn. Áformin eru í samræmi við Aðalskipulag Djúpavogshrepps 2008-2020 en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með hliðsjón af því ekki er líklegt að áformin hafi veruleg grenndaráhrif samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að falla frá grenndarkynningu og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?