Fara í efni

Yfirlýsing vegna ábúendakaupa á Gilsárteig 1, Eiðaþinghá

Málsnúmer 202506073

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 59. fundur - 05.06.2025

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur, 4.7.2025, frá Hilmari Gunnlaugssyni, fyrir hönd Gunnþórunnar Snæþórsdóttur og Jóns Almars Kristjánssonar, þar sem óskað er eftir yfirlýsingu sveitarfélagsins vegna ábúendakaupa á Gilsárteig 1, í Eiðaþinghá.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs staðfestir, í samræmi við 36. grein Jarðalaga nr. 81/2004 og A lið 48. greinar Samþykktar um stjórn Múlaþings, að ábúendur í Gilsárteigi 1, í Eiðaþinghá í Múlaþingi, þau Gunnþórunn Snæþórsdóttir og Jón Almar Kristjánsson hafa setið jörðina vel og mælir heimastjórn Fljótsdalshéraðs með því að þau fái jörðina keypta. Umræddir ábúendur eiga lögheimili í Gilsárteig 1 og hafa búið þar í áratugi. Ábúendur stunda sauðfjárbúskap á jörðinni og ástand mannvirkja er gott.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?