Fara í efni

Umsagnarbeiðni um 307. mál, Breyting á þingsályktun nr. 24,152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða.

Málsnúmer 202601223

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 178. fundur - 03.02.2026

Fyrir liggur frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis til umsagnar í umsagnagátt Alþingis, breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða, mál 307. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar nk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings ítrekar fyrri umsögn sína um málið og leggur áherslu á mikilvægi þess að Hamarsvirkjun komist í nýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar. Virkjunin mun bæði hafa jákvæð áhrif á orkuöryggi landsmanna sem og bæta aðgengi að orku á Austurlandi sem er mikilvæg forsenda áframhaldandi verðmætasköpunar og uppbyggingu svæðisins. Sveitarstjóra falið að koma umsögninni á framfæri fyrir hönd byggðaráðs.

Samþykkt með handauppréttingu með þremur atkvæðum, tveir á móti (HÞ, HHÁ).

Helgi Hlynur Ásgrímsson og Hildur Þórisdóttir leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar minnihlutans harma þá skammsýni sem er í afstöðu meirihluta byggðarráðs og fullyrðir að Hamarsá er íbúum sveitarfélagsins í heild meira virði óvirkjuð en virkjuð af erlendum aðilum eins og hér er lagt upp með. Hamarsvirkjun skoraði lang hæst í mati á verndargildi í áliti sérfræðinga í mati á þeim fimm virkjunarkostum sem lágu fyrir. Við undirrituð fulltrúar í byggðaráði fögnuðum því á fundi 24.9. 2024 að samkvæmt tillögu rammaáætlunar færi Hamarsvirkjun í verndarflokk og við erum enn þeirrar skoðunar að Hamarsvirkjun eigi heima í verndarflokki Helgi Hlynur Ásgrímsson og Hildur Þórisdóttir.
Fylgiskjöl:
Getum við bætt efni þessarar síðu?