Fara í efni

Úthlutun á leiguhúsnæði á Borgarfirði

Málsnúmer 202603032

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Borgarfjarðar - 67. fundur - 09.03.2026

Fyrir liggur að úthlututa tveimur leiguíbúðum á Borgarfirði, Ásbrún 1 og 2. Samkvæmt reglum um úthlutun á leiguhúsnæði í eigu Múlaþings (aðrar en félagslegar íbúðir) úthlutar heimastjórn, í samráði við sveitarstjóra, íbúðunum og auglýsir þær ef þess gerist þörf. Heimilt er að úthluta íbúðunum án auglýsingar.



Vegna nauðsynlegra viðgerða og viðhalds sem eru fyrirliggjandi í Ásbrún 1 samþykkir heimastjórn að úthluta Ásbrún 2 til Kjartans Ólasonar og Elísabetar D. Sveinsdóttur. Heimastjórn samþykkir enn fremur að úthluta Þórhildi Jóhannesdóttur Ásbrún 1 að viðgerðum loknum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?