Fara í efni

Brattahlíð og Baugsvegur ástand gatna

Málsnúmer 202607121

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 71. fundur - 03.09.2026

Fyrir liggur erindi frá Jóni Halldóri Guðmundssyni dags. 28.júlí sl. þar sem hann er að vekja athygli á ástandi gatna á Seyðisfirði, þá sérstaklega í Bröttuhlíðinni og á Baugsveginum. Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda situr fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn þakkar fyrir innsent erindi og tekur undir með bréfritara um óásættanlegt ástand gatnanna. Heimastjórn hefur haft umræddar götur á forgangslista sínum undanfarin ár, það er svo endanleg ákvörðun Umhverfis- og framkvæmdaráðs ásamt sviðstjóra framkvæmda hvernig viðhaldi gatna er forgangsraðað í Múlaþingi ár hvert.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?