Fundur Ferða- og menningarnefndar 13. maí 2019
Fundur var haldinn í Ferða- og menningarnefnd mánudaginn 13. maí 2019 í fundarsal Íþróttamiðstöðvar. Hófst fundurinn klukkan 15:00.
Mætt á fundinn
Tinna Guðmundsdóttir, formaður L-lista
Oddný Björk Daníelsdóttir, varaformaður D-Lista
Bóas Eðvaldsson frá ferðaþjónustu
Sesselja Hlín Jónasardóttir, frá ferðaþjónustu
Hjalti Þór Bergsson, áheyrnafulltrúi B-lista
Dagný Erla Ómarsdóttir, atvinnu-, menningar og íþróttafulltrúi sem ritar fundargerð.
Dagskrá:
- Vorfundur 2019. Greinargerð kynnt. Nefndin lýsir ánægju sinni með fundinn og vill halda þessu formi áfram á næsta ári. Stefnt að haustfundi í september 2019.
- Skiltamál. AMÍ fulltrúi kynnir lokaútgáfu af upplýsingaskilti við Vesturveg. Málið á lokastigi og stefnt að því að setja upp nýtt skilti í sumar.
- Samfélagsmiðlar – átak meðal ferðaþjónustuaðila. Nefndin hvetur til þess að loka youtube-síðunni „VisitSeyðisfjörður“ sem hefur ekki verið uppfærð í áraraðir. Nefndin telur tímabært að endurskoða samfélagsmiðla kaupstaðarins og leggur til að það verði gerð markaðsáætlun fyrir Seyðisfjarðarkaupstað.
- Framkvæmdir á Seyðisfirði. Dagný fer yfir stöðuna á þeim verkefnum sem hlutu styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða síðustu ár, Áningastaður við Neðri-Staf, Göngustígur að Búðarárfossi og Austdalur – Skálanes. Framkvæmdir ganga vel og stefnt er að því að klára verkefnin á þessu ári.
Ásýnd og almennt aðgengi í bænum er mjög mikilvægt fyrir ferðaþjónustugeirann sem og heimamenn og beinir nefndin því til bæjarráðs að fara í gagngerar endurbætur á gangstéttum.
Rætt var um aðkomu í bæinn og upplifun vegfarenda sem er ekki til fyrirmyndar og telur nefndin að leita þurfi leiða til að bæta ástandið.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 16:47.