Fundargerð í ferða- og menningarnefnd. Fundur var haldinn mánudaginn 12. mars 2018 kl. 16:00 á Bæjarskrifstofunni, Hafnargötu 44. Mætt: Margrét Guðjónsdóttir í fjarveru Arnbjargar Sveinsdóttur, Davíð Kristinsson, Sigrún Ólafsdóttir, Tinna Guðmundsdóttir sem ritar fundargerð og Jónína Brá Árnadóttir, sem starfar með nefnd. Boðuð forföll: Arnbjörg Sveinsdóttir og Hjalti Bergsson.
Fundargerð í ferða- og menningarnefnd
Fundur var haldinn mánudaginn 12. mars 2018 kl. 16:00 á Bæjarskrifstofunni, Hafnargötu 44.
Mætt: Margrét Guðjónsdóttir í fjarveru Arnbjargar Sveinsdóttur, Davíð Kristinsson, Sigrún Ólafsdóttir, Tinna Guðmundsdóttir sem ritar fundargerð og Jónína Brá Árnadóttir, sem starfar með nefnd.
Boðuð forföll: Arnbjörg Sveinsdóttir og Hjalti Bergsson
Dagskrá
1. Markaðssetning Seyðisfjarðarkaupstaðar: Kynningarefni fyrir Visitseydisfjordur verður með sama sniði og í fyrra. Í haust er stefnt á uppfærslu korts og bæklings en jafnframt er stefnt að því að útbúa samsvarandi efni tengt vetrarferðamennsku.
Samþykkt að nýta fjármagn vegna kynningarmála í stafræna markaðssetningu.
2. Bæjarskilti: Drög að bæjarkorti kynnt, umræður og ábendingar. Áfram í vinnslu.
3. Vorfundur ferðaþjónustunnar: Farið yfir drög að dagskrá fundarins. Ákveðið að hafa fundinn þriðjudaginn 24. apríl kl. 13, staðsetning auglýst síðar.
4. Menningarfundur við menntamálaráðuneyti: Lagt fram til kynningar.
5. Sumarstörf í tengslum við Vinnumálastofnun: Erindi frá bæjarráði, 23.02.18, lagt fram til kynningar. Til eru tillögur fyrir Tækniminjasafnið, Miðstöð Menningarfræða og Seyðisfjarðarkaupstað, umboðsmann umhverfis. Skaftfell mun einnig senda inn tillögu af starfi.
6. Upplýsingamiðstöð Seyðisfjarðar: Erindi frá bæjarráði, 07.03.18, lagt fram til kynningar. Búið er að ganga frá ráðningu á heilsársstarfsmanni. Einnig er búið að ráða á tjaldsvæði og aukastarfsmann á Upplýsingamiðstöð. Ekki er búið að ganga frá samningi við Ferðmálastofu fyrir rekstri en það er í ferli.
7. Landsáætlun og verkefnaáætlun um innviði: Erindi frá bæjarráði, 07.03.18, lagt fram til kynningar. Jónína hefur leitað eftir upplýsingum þar sem verkefni sem áður höfðu verið inni á drögum eru dottinn út. Nefndin telur t.d. að Skálanes eigi fullt erindi á verkefnaáætlunina, bæði hvað varðar verndun, öryggismál og aðgengi.
8. Bókasafn Seyðisfjarðar: Forstöðumaður bókasafns hefur sagt upp störfum, frá og með 1. mars. Ferða- og menningarmálanefnd þakkar Sólveigu Sigurðardóttur kærlega fyrir óeigingjarnt starf í þágu menningar- og þekkingarmiðlunar á Seyðisfirði.
9. Næsti fundur
Næsti fundur áætlaður 9. apríl klukkan 16:00
Tinna vék af fundi kl. 16:30-17:20
Fundi slitið 18:40.