Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti 15. apríl 2026 að auglýsa að nýju tillögu nýs aðalskipulags Múlaþings 2025-2045 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.
Um er að ræða fyrsta heildstæða aðalskipulag Múlaþings þar sem sett er fram stefna um landnotkun og framtíðarsýn sveitarfélagsins sem ætlað er að stuðla að hagkvæmri þróun byggðar, meðal annars með því að skapa sem best skilyrði fyrir atvinnulíf og gera búsetu á svæðinu eftirsóknarverða.
Tillagan er aðgengileg í gegnum vef Skipulagsstofnunar
Óskað er eftir að umsagnir og ábendingar berist fyrir 13. júlí 2026 á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum á netfanginu skipulagsfulltrui@mulathing.is
Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.