Ástæða er til að minna íbúa og fyrirtæki á að í tunnu undir matarleifar má einungis setja matarleifar. Mikilvægt er að nota aðeins grænu maíspokana undir matarleifar.
Samkvæmt Kristjáni Ólafssyni, framkvæmdastjóra Moltu, hefur aukist að alls kyns óæskilegur úrgangur berist með matarleifunum, sem veldur vandræðum í vinnslu.
„Við erum að fá meira af almennu rusli og öðrum hlutum sem eiga alls ekki heima í matarleifunum. Þetta gerir vinnsluna erfiðari, eykur urðun og getur skemmt búnaðinn. Við erum að fá plast, gler, skó og jafnvel hluta úr bílvélum. Garðaúrgangur, greinar, tré og afskorin blóm eiga heldur ekki heima þar, því slíkt getur skemmt vinnslubúnaðinn hjá okkur,“ segir Kristján.
Matarleifarnar eru unnar hjá Moltu í Eyjafirði þar sem þeim er breytt í moltu sem nýtist meðal annars til landgræðslu, í garða bæjarbúa og til jarðvegsbóta í sveitum. Íbúar geta nálgast ókeypis moltu á losunarsvæðum fyrir garðaúrgang í sumar.
„Því betur sem við flokkum, því betur nýtist úrgangurinn og því minna þarf að urða,“ segir Kristján að lokum.
Á vef Moltu má sjá leiðbeiningar um flokkun matarleifa en Múlaþing vinnur jafnframt að gerð flokkunarleiðbeininga fyrir helstu úrgangsflokka.
