Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings samþykkti á fundi sínum 18. maí 2026 að grenndarkynna fyrirhuguð áform um gerð nýs vegslóða og bílastæða við Svörtu Sanda á Búlandsnesi.
Framkvæmdin er í samræmi við skilmála aðalskipulags.
Umhverfis- og framkvæmdaráð hefur falið skipulagsfulltrúa að framkvæma grenndarkynningu í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna framkvæmdaáforma við Svörtu Sanda á Búlandsnesi við Djúpavog, í tengslum við gerð nýs vegslóða og bílastæða.
Meðfylgjandi fylgiskjöl:
- Umsögn Náttúrufræðistofnunar, dagsett 20.05.2026
- Umsögn Minjastofnunar, dagsett 08.05.2026.
- Umsögn heimastjórnar á Djúpavogi, dagsett 07.05.2026
- Yfirlitsmynd, dagsett 22.04.2026.
- Grunnmynd og kennisnið, dagsett 22.04.2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila í síðasta lagi þann 17. júní í gegnum Skipulagsgátt.
Jafnframt er unnt að óska eftir frekari upplýsingum með því að senda póst á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is.