Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti þann 29. júní 2026 að kynna vinnslutillögu fyrir nýtt deiliskipulag frístundabyggðar í landi Kollsstaðasels samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsáætlunin er unnin af Landslagi ehf. fyrir hönd landeigenda en viðfangsefni hennar er að afmarka 14 nýjar lóðir fyrir frístundahús ásamt því að skilgreina fyrirkomulag aðkomu.
Skipulagið er aðgengilegt í gegnum Skipulagsgátt
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum við skipulagslýsinguna til og með 4. ágúst 2026. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is.
Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.