Afrakstur ævinnar er sýning um ævistarf Guðrúnar Sigurðardóttur frá Húsey. Þar verða brot af verkum Guðrúnar sýnd, allt frá barnæsku fram á þennan dag.
Þráin til að skapa og varðveita handverk sem og að kenna öðrum er Guðrúnu í blóð borin og varð það hennar ævistarf. Hún starfaði sem handmenntakennari í Egilsstaðaskóla um þrjátíu ára skeið. Samhliða hélt hún námskeið um allt land í fjölbreyttu handverki og rak um árabil Tómstundaiðjuna á Egilsstöðum. Þekktust var hún fyrir náttúruskreytingarnar sínar og sérstaklega blómakörfurnar sem prýtt hafa Egilsstaði um árabil. Sýningunni er ætlað að vekja okkur til umhugsunar um hvers virði ævistarf fólks er sem á skapandi hátt brennur fyrir því að gera samfélagið sitt betra og áhugaverðara.
Sýningin verður opnuð í Sláturhúsinu á Egilsstöðum , laugardaginn 12. september kl. 14:00 og stendur til 26. september. Hún styrkt af Uppbyggingarsjóð Austurlands og Menningarsjóði Múlaþings.