Fara í efni

Allt þetta og himininn líka

Gletta, Hafnarhúsi, Borgarfjarðarhöfn. 14. jún 2026 - 15. júl 2026
Verið velkomin á myndlistarsýninguna Allt þetta og himinninn líka sem opnar í Gallerí Glettu laugardaginn 13. júní kl 14 og stendur fram í miðjan júlí.
 
Sýningin er tilraun til að fanga og fagna gagnkvæmum áhrifum umhverfisins og listakonunnar Emilíu L‘Orange (1938-2025). Sýnd verða vatnslitaverk sem unnin voru á hennar seinni árum ásamt tveimur olíuverkum sem hún málaði meðan hún var búsett á Borgarfirði eystra.
 
Sýningin er okkar leið til að fleiri geti notið listagyðjunnar sem í henni bjó.
Megi áhrifin lifa áfram.
Getum við bætt efni þessarar síðu?