Barnaheill, Geðhjálp og Unnsteinn Manúel halda áfram ferð sinni um landið og efna nú til fundar við ungmenni á Austfjörðum 5.-9. október með viðkomu á Vopnafirði, Reyðarfirði, Egilsstöðum og Höfn í Hornafirði.
Á hverjum stað er haldin vinnustofa með nemendum úr efstu bekkjum grunnskólanna á nærliggjandi svæðum til að ræða um veruleika ungs fólks á hverjum stað. Áhersla er lögð á samtal um samskipti, tengsl og líðan. Vinnustofurnar fara fram á skólatíma og tekur hver þeirra um 2,5 klst og er nemendum boðið í pizzuveislu í lokin.
Unnið er úr skilaboðum ungmennanna samdægurs og seinna um kvöldið er fullorðnum á svæðinu boðið til samtals á opnum íbúafundi þar sem farið verður yfir helstu niðurstöður úr vinnustofu dagsins. Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili.
Íbúafundurinn er opinn öllum, en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti. Forsjáraðilar, sveitarstjórnarfólk, starfsfólk í skóla- og frístundamálum, heilbrigðis- og velferðarþjónustu svæðisins og lögregla eru sérstaklega hvött til að mæta og taka þátt í samtalinu.
Dagskráin á hverjum stað endar svo á stuttum tónleikum með Unnsteini Manúel.
Íbúafundirnir verða í grunnskóla Vopnafjarðar mánudaginn 5. október kl. 19:30, í Safnaðarheimili Reyðarfjarðar þriðjudaginn 6. október kl. 19:30, í Egilsstaðaskóla miðvikudaginn 7. október kl. 19:30, og í Nýheimum á Höfn í Hornafirði fimmtudaginn 8. október kl. 19:30.
Fyrirkomulagið að vinnustofunum og kvöldfundunum er blanda af ungmennaþingum Barnaheilla og Geðlestar Geðhjálpar, en félögin hafa bæði ferðast um landið til að ræða við ungmenni um þeirra reynslu og fá að heyra þeirra sjónarmið.
Með því að leggja saman krafta sína vilja Barnaheill og Geðhjálp nýta aðferðarfræði beggja félaga og skapa vettvang til að virkja samtal milli kynslóða um málefni sem standa ungmennum í byggðum landsins næst.
Í september lá leiðin um Vesturland og Vestfirði, þar sem félögin funduðu með ungmennum og fullorðnum á Grundarfirði, Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði.
Nánari upplýsingar veita Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar s. 777 6666 og Sólveig Ólafsdóttir kynningarstjóri Barnaheilla s. 893 9912.