Fara í efni

BMX brós á Djúpavogi

við Djúpavogskirkju 16. júlí 2026 kl. 18:00-19:30

BMX BRÓS mæta á Djúpavog með orkumikla BMX sýningu og skemmtilegt hjólanámskeið á planinu við Djúpavogskirkju fimmtudaginn 16. júlí kl. 18:00

Þeir byrja á sýningu sem samanstendur af stórum stökkum, peppandi tónlist, húmor, áhættu og brjáluðu stuði. Áhorfendur eru þátttakendur í sýningunni og geta BMX BRÓS lofað gæsahúð og einstakri upplifun.

Í lok sýningar stilla BMX BRÓS upp fyrir námskeið þar sem þeir fara í stutta upphitun með krökkunum, fara yfir grundvallaratriðin og kenna krökkunum að fara yfir stökkpalla. Eftir það er sett upp þrautabraut sem krakkarnir spreyta sig á. Ekki er nauðsynlegt að mæta á BMX hjóli enda geta krakkarnir spreytt sig á pöllunum og þrautabrautinni á hverskyns hjólum. Hjálmaskylda er á námskeiðinu.

 

Viðburðurinn er styrktur af Múlaþingi og er aðgangur ókeypis. Einnig verða viðburðir á Seyðisfirði þann 17. júlí kl.12 og Egilsstöðum kl. 16.

BMX BRÓS hlakka til að sjá alla snillingana sem mæta.

Getum við bætt efni þessarar síðu?