Fara í efni

BMX brós á Seyðisfirði

við Gamla skóla 17. júlí 2026 kl. 12:00-13:30

BMX BRÓS mæta á Seyðisfjörð með orkumikla BMX sýningu og skemmtilegt hjólanámskeið á vellinum bakvið Gamla skóla  föstudaginn 17. júlí kl. 12:00.

Þeir byrja á sýningu sem samanstendur af stórum stökkum, peppandi tónlist, húmor, áhættu og brjáluðu stuði. Áhorfendur eru þátttakendur í sýningunni og geta BMX BRÓS lofað gæsahúð og einstakri upplifun.

Í lok sýningar stilla BMX BRÓS upp fyrir námskeið þar sem þeir fara í stutta upphitun með krökkunum, fara yfir grundvallaratriðin og kenna krökkunum að fara yfir stökkpalla. Eftir það er sett upp þrautabraut sem krakkarnir spreyta sig á. Ekki er nauðsynlegt að mæta á BMX hjóli enda geta krakkarnir spreytt sig á pöllunum og þrautabrautinni á hverskyns hjólum. Hjálmaskylda er á námskeiðinu.

 

Viðburðurinn er styrktur af Múlaþingi og er aðgangur ókeypis. Einnig verða viðburðir á Djúpavogi 16. júlí kl.18 og á Egilsstöðum 17. júlí kl. 16.

BMX BRÓS hlakka til að sjá alla snillingana sem mæta.

Getum við bætt efni þessarar síðu?