Fara í efni

Bókmenntaganga: Saga og raddir kvenna

Safnahúsið á Egilsstöðum 19. júní 2026 kl. 17:00
Söfnin í Safnahúsinu á Egilsstöðum bjóða upp á Sögugönguna Saga og raddir kvenna föstudaginn 19. júní klukkan 17.

Galdurinn við þessa göngu er að hún þarf ekki eiginlegan leiðsögumann en í þessu tilfelli mun Stefán Bogi Sveinsson, héraðsskjalavörður leiða gönguna.

Upplestrar eru í forgrunni og þátttakendur göngunnar eru hvattir til þess að taka þátt í því að lesa upp. Gangan er því bæði samverustund og skapandi upplifun.

Gangan er sveigjanleg bókmenntaganga sem hægt er að framkvæma sem víðast. Hún byggir á því að velja nokkra lykilstaði sem flestir bæir eiga sér (t.d. leikskóla, sundlaug, íþróttavöll, bókasafn, listaverk eða almenningsgarð) og tengja þá við texta kvenna sem kalla fram ákveðin sjónarhorn. Eftir gönguna verður hægt að fá lánuð spjöldin sem mynda gönguna til þess að fara í sína eigin göngu víðsvegar um Ísland.

Gengið verður frá Safnahúsinu á Egilsstöðum klukkan 17 og mun gangan taka um það bil klukkustund.

Almenningsbókasöfn um land allt sameinuðu krafta sína undir merkjum verkefnisins Læsi á stöðu og baráttu kvenna í tilefni af Kvennaári 2025. Kvenréttindafélag Íslands og Borgarbókasafnið leiddu saman hesta sína með þessari bókmenntagöngu sem verður svo aðgengileg til láns ýmsum bókasöfnum, þar á meðal Bókasafni Múlaþings.
Getum við bætt efni þessarar síðu?