Dúettar - Við leitum að þátttakendum, pörum; vinapörum, kærustupörum, systkinapörum, foreldrapörum ...
Dúettar er dansverk eftir Ásrúnu Magnúsdóttur sem var frumsýnt á Listahátíð í Reykjavík 2024. Í verkinu stigu ólík danspör á svið sem tengdust persónulegum böndum.
Pörin voru vinir, mæðgin, systkini, samstarfskonur ... þau bundust ólíkum böndum en áttu það sameiginlegt að elska tónlist og dans. Í hverju pari var einn fatlaður einstaklingur og hinn ófatlaður. Nú verða Dúettar endurgerðir með pörum sem búa á Austurlandi og elska tónlist og/eða dans og hér með er auglýst eftir pörum til þátttöku. Verkið verður sýnt í Sláturhúsinu vorið 2026 og það verða nokkrar æfingalotur; í september í febrúar/mars og svo fyrir frumsýninguna í apríl.
Hér er sótt um: https://docs.google.com/forms/d/1Bvik0w4iHuOlkp5UOb0UsUvnVi_o_zHYL9m6kUYM8q8/edit?fbclid=PAQ0xDSwLXkxZleHRuA2FlbQIxMAABp-oISVVi-hXTaukmKHdiyKA_-Et4pog7wKisrvaTcXim7bejWVty8I_2_cVA_aem_9qtj8oCA5uRooxKpv0iZJA
Verk Ásrúnar Magnúsdóttur hafa notið vinsælda og hreppt verðlaun bæði hérlendis og erlendis. Hún leggur áherslu á að útvíkka hugmyndir okkar um dans, kóreógrafíu og sviðslistir. Verkið Dúettar verður unnið í náinni samvinnu við hópinn og aðra listræna aðstandendur.