Í þrjár vikur í júní heldur Skaftfell utan um þematengda gestavinnustofu sem nefnist „Slóð“, undir handleiðslu Kamillu Gylfadóttir og Jessicu Auer. Þátttakendur eru hópur sjö alþjóðlegra listamanna sem munu dvelja á Seyðisfirði og hugleiða sambandið milli þess að ganga, hugsa og skapa.
Við bjóðum alla hjartanlega velkomna að hitta hópinn á bókasafninu á Seyðisfirði, mánudaginn 15. júní, og taka þátt í
hugleiðingum um göngu. Yfirmaður bókasafnsins, Sonia Stefánsson, mun kynna ákveðna kima bókasafnsins sem tengjast gönguþemanu og munu listamennirnir deila hugrenningum sínum um mismunandi bækur, göngur og listræn verkefni sem hafa „farið með hugann þeirra í göngu“. Viðburðurinn fer fram á ensku og boðið verður upp á kaffi og te.
Ekki ólíkt sögu má finna upphaf, miðju og endi í göngu. Í bókinni Wanderlust: A History of Walking hugleiðir rithöfundurinn Rebecca Solnit sambandið milli slóðar og sögu. „Sá sem færir sig ekki úr stað hefur ekki yfirsýn yfir öllum stígnum“ skrifar hún. „Stígurinn kemur smám saman í ljós þegar maður gengur áfram eftir honum og það sama má segja um sögu. Kröpp beygja er eins og söguþráður sem tekur óvænta stefnu, bratti magnar upp spennuna yfir útsýninu á hæsta punkti, afleggjari er eins og upphaf á nýjum söguþræði, áfangastaður er endir á sögu.“
Þátttakendur í gestavinnustofunni Slóð:
Abel Ghekiere (BE)
Benjamin Perron (CA)
Cliff Andrade (UK)
Kimmo Antero Ylönen (FI)
Kristen Cochran (US)
Maarja Nurk (EST/DE)
Ósk Vilhjálmsdóttir (IS)
Tristan Lajarrige (CA)
Yelizaveta Strakhova (RU/NL)