Fara í efni

Íslandsstofa á Austurlandi

Fróðleiksmolinn, Búðareyri 1, Reyðarfirði 11. febrúar 2026 kl. 11:00-13:00

Á síðasta ári var samþykkt á fundi útflutnings- og markaðsráðs endurskoðuð langtímastefna fyrir íslenskan útflutning. Íslandsstofa leiddi vinnu við gerð stefnunnar, sem er samstarfsverkefni stjórnvalda og atvinnulífs. Markmið hennar er að stuðla að auknum útflutningstekjum og sjálfbærum hagvexti á Íslandi.

Í febrúar og mars 2026 leggja fulltrúar Íslandsstofu land undir fót, með Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóra Íslandsstofu í fararbroddi, og fara hring um landið til að kynna endurskoðaða stefnu.

Annað stopp ferðalagsins er Austurland þar sem boðið verður til kynningarfundar í samstarfi við Austurbrú. Fundurinn fer fram í Fróðleiksmolanum, Búðareyri 1, á Reyðarfirði þann 11. febrúar kl. 11:00-13:00. Boðið verður upp á súpu að hætti heimamanna og kaffi.

Skráning á fundinn: https://share-eu1.hsforms.com/1ilVqbsIaSQewR4zxsfYt8w2eythf

Á fundinum verður farið yfir helstu útflutningstækifærin fram á veginn og greint frá þeirri þjónustu og aðgerðum sem Íslandsstofa skipuleggur til stuðnings útflutningsfyrirtækjum. Þá mun Karl Guðmundsson, verkefnastjóri stórfjárfestinga í forsætisráðuneytinu, kynna samstarf ráðuneytisins og Íslandsstofu um stórfjárfestingar og fjalla um atvinnustefnu stjórnvalda.

Fundurinn er einkum gagnlegur fyrirtækjum sem starfa við eða hyggja á útflutning, sem og öðrum hagaðilum íslensks útflutnings. Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Íslandsstofu auk þess sem hægt er að hafa samband við Brynhildi Georgsdóttur, brynhildur@islandsstofa.is.

Getum við bætt efni þessarar síðu?