Fara í efni

BRAS: Kvöldlestur í sundlauginni á Djúpavogi

Íþróttamiðstöð Djúpavogs 14. október 2025 kl. 19:00-19:30

Bókasafn Djúpavogs stendur fyrir kvöldlestri fyrir börn í sundlauginni á Djúpavogi. Lesari er Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings.

Gert er ráð fyrir að lesturinn hefjist um 19:00 og verði lokið fyrir 19:30 og því er tilvalið að koma í sund, hlusta á lestur og fara svo heim á náttfötunum.

Lesturinn er samstarfsverkefni Bókasafns Djúpavogs og sundlaugarinnar á Djúpavogi og er hluti af Bras - menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi.

Getum við bætt efni þessarar síðu?