Fara í efni

Langt út / Far out: Móses Hightower

Sláturhúsið, Kaupvangi 9 Egilsstöðum 12. september 2026 kl. 17:00-18:00

Í ágúst og september ætlar Moses Hightower að vera víða við fimmta mann og spila sig í fyrsta sinn hringinn í kringum landið í einni rispu. Það verður allt að frétta; glóðvolg nýútkomin plata í farteskinu og ennþá nýrri lög af annarri í smíðum á prógramminu. Stökkvið á Moses-lestina!

Hljómsveitin kemur við í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og heldur þar tónleika laugardaginn 12. september klukkan 17:00. 
Miðaverð er 3.000 kr. en frítt inn fyrir 16 ára og yngri. 

Getum við bætt efni þessarar síðu?