Fara í efni

Langt út / Far out: Tríó Moritz Christiansen

Sláturhúsið, Kaupvangi 9 8. ágúst 2026 kl. 20:00-21:00
Í sumar heldur saxófónleikarinn Moritz Christiansen í tónleikaferðalag um sitt fyrrum heimaland, Ísland, ásamt tríói sínu frá Hamborg. Í upphafi ferðarinnar mun tríóið vinna að nýrri tónlist, sem þau munu síðan flytja á ýmsum stöðum víðs vegar um landið og taka upp í hljóðveri í lokin. Tónlistina má flokka sem norrænan djass og býr hún yfir víðum hljómi þar sem áhersla er lögð á skýrar laglínur og það að segja sögur. Tónlistin þróast hægt og stöðugt, en geymir þó óvænta hnykki og sveiflur. Eftir tónleika í Reykjavík og á Akureyri er Sláturhúsið þriðji áfangastaður ferðarinnar.
 
Auk Moritz skipa tríóið þeir Alex Petratos trommuleikari og Anton Deyß gítarleikari.
Miðaverð kr 3000
Getum við bætt efni þessarar síðu?