Verið hjartanlega velkomin á barnanámskeið í leirvinnustofu Antoníu á Berunesi, þar munum við vinna með íslenskan leir, þjóðsögur og sköpum austfirskra vætti.
Við byrjum á því að ganga að læknum sem líður framhjá bænum og sækjum leir og leitum að kristöllum. Síðan höldum við í vinnustofuna og búum til okkar eigin ævintýraverur, til dæmis
dreka, nykur og tröll með innblæstri frá sögum af svæðinu. Ég mun lesa nokkrar stuttar sögur úr bókinni Dvergasteinn til að kveikja hugmyndir og við gerum tilraunir með íslenskan leir og blanda hann með steinleir. Í smiðjunni verður einnig stutt hlé þar sem boðið verður upp á te eða heitt súkkulaði og ferska ávexti.
Að smiðjunni lokinni tekur um 2–3 vikur að brenna verkin og verður hægt að sækja þau þegar þau eru tilbúin.
Lengd: 2 klukkustundir
Skráning: contact@fishfactory.is
Dagskrá:
- Móttaka og kynning
- Ganga að læknum til að safna leir og leita að kristöllum
- Þjóðsaga úr Dvergasteini
- Leir mótun ævintýravera
- Hlé með tei/heitu súkkulaði og ávöxtum
- Haldið áfram að skapa og verurnar skoðaðar eftir námskeiðið
Sjá Facebookviðburð
Upplýsingar um aðra viðburði BRAS má finna hér.