Fara í efni

MAAR - Tónleikaröðin Bláa kirkjan

Bláa kirkjan, Seyðisfirði 15. júlí 2026 kl. 20:30

Hugljúfir tónleikar þriggja tónlistarkvenna. Órafmagnað og fallega raddað. 

MAAR er samvinnuverkefni Aspar Eldjárn, Helgu Ragnarsdóttir og Valeriu Pozzo, þriggja vinkvenna sem allar starfa í tónlist en eru nú í fyrsta skipti að semja saman. Vinkonurnar kynntust fyrir rúmum áratug í London þar sem þær bjuggu og hafa allar starfað við tónlist og aðra listsköpun síðan þá. Þær hafa unnið saman um langt skeið, þar sem þær hafa stutt við og leikið tónlist hver annarrar en leiða nú í fyrsta sinn hesta sína saman í sameiginlegri tónsköpun.

Kveikjan að þessu samstarfsverkefni varð til í samtali þeirra á milli þar sem þær ræddu mikilvægi þess að búa til umhverfi sem hlúir að, styður við og hvetur til sköpunar og vildu þær búa til slíkan griðarstað í hver annarri. Þær héldu því í sumarbústað á Suðurlandi sumarið 2024, þar sem á einni viku urðu til fjögur lög og textar sem munu prýða fyrstu stuttskífu sveitarinnar. Er stuttskífan einungis upphafið af tónsköpuninni en hugsunin er að fylgja henni eftir með áframhaldandi tónsmíðum, breiðskífu og tónleikahaldi um ókomin ár.

Tónlistin sjálf einkennist af röddunum, djúpstæðum en óræðum textum og órafmögnuðum hljóðfærum.

Almennur aðgangseyrir: 4.000 kr. Öryrkjar og eldri borgarar: 3000 kr. 16 ára og yngri: Ókeypis

//

MAAR is a collaborative project by Ösp Eldjárn, Helga Ragnarsdóttir, and Valeria Pozzo — three friends who all work in music but are now composing together for the very first time. The friends met over a decade ago while living in London and have all been working in music and other creative arts since then. They have worked together for a long time, supporting and playing each other’s music, but are now joining forces for the first time in a joint musical creation.

The spark for this collaborative project came from a conversation between them about the importance of creating an environment that nurtures, supports, and encourages creativity, and they wanted to build such a sanctuary in one another. Consequently, they headed to a summer cottage in South Iceland in the summer of 2024, where, in just one week, they created four songs and lyrics that will grace the band’s debut EP. This EP is only the beginning of their musical journey; the plan is to follow it up with continued songwriting, a full-length album, and concerts for years to come.

The music itself is characterized by their vocals, deep yet enigmatic lyrics, and acoustic instruments.

Getum við bætt efni þessarar síðu?