Rafrænt málþing á teams 22. október 2026
Sérfræðingar hjá Rannsóknarsetri í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst kynna fjórar rannsóknir sem setrið hefur unnið að síðastliðið ár. Þar á eftir verða umræður og síðan smá fjölmiðlaspegill, þar sem við fáum sjónarhorn nokkurra héraðsfrétta blaðamanna.
Dagskrá
13.00 – 13.20 Óstaðbundin störf og óskabúaseta: Eru þesskonar störf tækifæri eða ógn fyrir landsbyggðina m.t.t. íbúaþróunar? Vífill Karlsson
13.20 – 13.30 Byggðabragur ungs fólks. Gréta Bergrún.
13.30 – 13.50 Strandveiðar og byggðakvótar: Hafa þau kerfi áhrif á útsvarstekjur viðkomandi sveitarfélaga. Vífill Karlsson.
13.50 – 14.10 Kynjuð upplifun jafnréttis í sveitarfélögum og mismunandi stærðum byggðarlaga. Gréta Bergrún
14.10 – 14.20 Kaffiáfylling
14.20 – 14.40 Umræður
14.40 – 15.30 Hvað er að frétta úr landshlutanum? Nokkrir héraðsfréttamenn fara yfir málin úr sínum landshlutum, áskoranir og byggðamál sem ættu að fá athygli fræðafólks. Umræður og spurningar úr „sal“