Bjartur Elí Ragnarsson heldur sýninguna “Allt fyrir utan Hafnarhúsið” í Glettu við Borgafjarðarhöfn. Sýningin inniheldur vídeó-innsetningu unna í og út frá sýningarrýminu sjálfu. Hún spilar með skynjun fólks á byggingunni og veitir gestum einstakt sjónarhorn af nágrenninu í kring og náttúruperlunum í fjarska.
Opnun verður 15. ágúst, 17:00-19:00. Sýningin stendur síðan til og með 1. september. Öll velkomin!
Sýningin er styrkt af Múlaþingi og Myndlistarsjóði.
//
Bjartur Elí Ragnarsson (f. 1999) er myndlistarmaður búsettur í Reykjavík. Hann útskrifaðist úr Listaháskólanum 2024 og hefur unnið síðan að myndlistarsýningum heima og erlendis ásamt kvikmyndaverkefnum. Í verkum hans er vídeó forsprakki listsköpunar, þar helst í vörpunar-miðuðum og staðbundnum innsetningum.
(bjartur.org)