Miðvikudaginn 28. nóvember kl 19:30 - 20:30 verða myrkraþrautir í Tjarnargarðinum fyrir alla fjölskylduna í boði Leikfélags Menntaskólans á Egilsstöðum.
Fólk mætir hjá sviðinu þar sem fyrsta þrautin verður, síðan verður opið í gönguleið sem krefst þess að leysa þrautir til þess að komast áfram og fá nammi. Gönguleiðin er tilvalin fyrir fjölskyldur og tekur hæfilegan tíma. Við hvetjum krakkana til að mæta í fötum eftir veðri og koma með tóma vasa svo hægt sé að fylla þá af nammi!
Börn yngri en 12 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum vegna útivistartíma barna.
Við hvetjum alla til að mæta í búningum!
Hlökkum til að sjá ykkur!
Stjórn LME