Fara í efni

Námskeið: Knipl á þjóðbúning

Herðubreið Seyðisfirði 14. mars 2026

Heimilisiðnaðarfélag Íslands stendur fyrir námskeiði í knipli í Herðubreið á Seyðisfirði

Lengd námskeiðs: 4 skipti = 12 klst.

Tími: 14., 15., 21. og 22. mars - laugardagur og sunnudagur kl 14-17

Námskeiðsgjald: 39.900kr (35.910kr fyrir félagsmenn) efni er ekki innifalið

Staður: Herðubreið á Seyðisfirði

Kennt er að knipla á upphlutsbak. Nemendur velja á milli blúndu-, stiga-, nets- eða takkamynsturs úr gull- eða silfurþræði á 20. aldar upphlut. Á 19. aldar upphlut stendur valið á milli takka eða nokkurra mismunandi leggingamynstra úr gull- eða silfurþræði og/eða silki.

Nemendur þurfa að vera með eigið kniplbretti og pinna en einnig er möguleiki að fá lánað hjá kennara. Ef til að fá lánsbretti þarf að láta okkur vita um leið og skráning hefur verið kláruð.

Skráning og nánari upplýsingar hér.

Getum við bætt efni þessarar síðu?