Fara í efni

Náttúruganga með Hinsegin klúbbnum

Herðubreið, Seyðisfirði 3. október 2026 kl. 10:00
Seyðisfjörður Queer Association kynnir Hinsegin klúbbinn, mánaðarlegan viðburð á Seyðisfirði fyrir meðlimi og bandamenn LGBTQIA+ samfélagsins til að koma saman, tengjast og hafa gaman.
Dagskráin er breytileg frá mánuði til mánaðar og fyrri viðburðir Hinsegin klúbbsins hafa meðal annars verið umræðuhópar, módel teikning, danspartí, tie-dye, karókí og vefnaðarsmiðjur.
Umsjónarmenn Hinsegin klúbbsins eru Ju Canon, Bella Podpadec og Ra Tack.
 
Í október mun Hinsegin klúbburinn bjóða upp á gagnvirka náttúrugöngu undir leiðsögn Ju Canon, með náttúruleiðsögn ásamt öndunar- og hreyfiæfingum með Bellu Podpadec. Komdu með, farðu út, tengstu öðrum og njóttu þess að eiga saman fjöruga stund!
 
Viðburður er á ensku.
Mikilvægt að klæða sig eftir veðri!
 
 
Upplýsingar um aðra viðburði BRAS má finna hér.
 
Getum við bætt efni þessarar síðu?