Fara í efni

Opin vinnustofa

Netagerðin, Strandarvegi 13 Seyðisfirði 11. september 2026 kl. 16:00-18:00
Verið velkomin á opna vinnustofu þeirra Söruh Deibele og Emanuel Schulze í Netagerðinni, Strandarvegi 13 Seyðisfirði, föstudaginn 11. september kl. 16.00.

Sarah og Emanuel dvelja nú í tvo mánuði í gestavinnustofu Skaftfells með styrk frá Kunststiftung Sachsen-Anhalt og hafa þau verið að vinna með teikningar og málverk.

Við bjóðum ykkur að koma og kynnast verkum þeirra og vinnuaðferðum og njóta saman huggulegrar stundar með léttum veitingum og drykkjum.
Getum við bætt efni þessarar síðu?