Fara í efni

Opnun á Vesturvegg: Osey - Benni Hemm Hemm, Lasse Høgenhof, Mariana Murcia og Oceanfloor Group

Skaftfell, Seyðisfirði 21. nóvember 2026 kl. 15:00-17:00
Verið velkomin á opnun nýrrar sýningar á Vesturvegg Skaftfell Bistró, laugardaginn 21. nóvember kl. 15:00.
 
Benni Hemm Hemm tók upp plötuna Osey á Seyðisfirði á einni viku og notaði eingöngu röddina sína. Í samstarfi við Mariönu Murcia, Lasse Høgenhof og Oceanfloor Group hefur platan tekið á sig mynd teikninga, forma og texta sem birtast í útgáfu og myndverkum sem öll eru til sýnis á sýningunni á Vesturvegg Skaftfelli bistró, auk órafmagnaðs flutnings Benna Hemm Hemm sem byggir á plötunni.
 
Getum við bætt efni þessarar síðu?