Fara í efni

Ritlistarsmiðja fyrir 16-25 ára

Vegahúsið Ungmennahús 5. október 2026 kl. 17:00-20:00

Mánudaginn 5. október verður ritlistarsmiðja fyrir 16-25 ára í Vegahúsinu á Egilsstöðum. Smiðjan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist og er því að kostnaðarlausu.
ATH. skráning er nauðsynleg - https://forms.cloud.microsoft/e/0uWbSAneBx?origin=lprLink

Frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, hitta önnur skáld, kynnast verkum þeirra og jafnvel lesa upp sín eigin verk. Leiðbeinandi verður rithöfundurinn Margrét S. Höskuldsdóttir.

Margrét hefur gefið út þrjár skáldsögur og hlaut íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann fyrir bókina Lokar augum blám. Fjórða bók Margrétar er væntanleg í október.

Smiðjan hefst klukkan 17 og boðið verður upp á veitingar í hléi.

Verkefnið er samstarfsverkefni Bókasafns Múlaþings og Vegahússins og er nú haldið í fjórða sinn. Verkefnið hlaut styrk frá Uppbyggingarsjóði Austurlands.

Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/4ZNgTM9X3

Ritlistarsmiðja fyrir 16-25 ára

Getum við bætt efni þessarar síðu?