Fara í efni

BRAS: Ritlistasmiðja fyrir 16-25 ára með Ævari Þór Benediktssyni

Vegahúsið Ungmennahús 29. september 2025 kl. 17:00-20:00

Mánudaginn 29. september verður ritlistasmiðja fyrir 16-25 ára í Vegahúsinu á Egilsstöðum.
Smiðjan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

ATH. skráning er nauðsynleg - https://forms.cloud.microsoft/e/emtFaHF85x

Frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, hitta önnur skáld, kynnast verkum þeirra og jafnvel lesa upp sín eigin verk.

Leiðbeinandi verður leikarinn og rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson.

Ævar er menntaður leikari og hefur leikið bæði á sviði og í sjónvarpsþáttum auk þess að framleiða eigið efni fyrir útvarp og sjónvarp. Ævar hefur um árabil verið einn vinsælasti barna- og unglingabókahöfundur landsins.

Smiðjan hefst klukkan 17:00 og boðið verður upp á veitingar í hléi.

Verkefnið er samstarfsverkefni Bókasafns Héraðsbúa og Vegahússins Ungmennahúss og er styrkt af Uppbyggingasjóði Austurlands.

Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/70c8MkM38

Ritlistasmiðja með Ævari Þór Benediktssyni

Getum við bætt efni þessarar síðu?